Ýmislegt-Íslenskt - Augun þín

Prenta texta

Augun þín
fá dimmu í dagsljós breytt.
Augun þín
fá sorgarskýjum eytt.

Ljómi þau er allt svo undur bjart
að ég
því trúi vart,
að mér þau segi satt.

Þó eru augun þín
svo full af tærri tryggð
og tállaus yfirskyggð, af
ást.

Augun þín, þau birta eitt og allt,
segja þúsundfalt
að þú sért ástin mín.

Burt rekur þú frá
mér sérhverja sorg,
syng ég því glaðvær um stræti og torg,
vegsama allt sem þau tjá, og ég á
geymt í hjarta
mínu.