Heitar Lummur - Seinna meir

Prenta texta

Þei, þei þýtur í mó,
hrein mey, sælleg og rjóð
Sei, sei verður hún mín?
Heit, heit, ástkær og hýr.

Viðlag:
Allir eru að kalla úti um allt á alla
og bráðum verður hún horfin mér frá
horfin út á sjóinn, eitthvað út í bláinn
horfin inn í annan heim.

Hei, hei, heyrðu mig nú, sei,sei segðu ekki nei
Þei, þei, hlustaðu á hei, hei, vertu mér hjá.

Allir eru að kalla, úti um allt á alla
og bráðum verður hún horfin mér frá
horfin út á sæinn, eitthvað út í bæinn
horfin inn í annan heim.

Seinna meir, segi ég þér, seinna meir trúir þú mér
Þú mátt ekki fela þig. Allir eru að kalla
úti um allt á alla, endalaust um allan heim.