Stóra stundin okkar - Súrmjólk í hádeginu

Prenta texta

Ég er bara 5 ára og kenna á því fæ
klukkan 7 á morgnana er mér dröslað niðrí bæ.
Enginn tekur eftir því þó heyrist lítið kvein
því mamma er að vinna en er orðin allt of sein.Súrmjólk í hádeginu og Cheerios á kvöldin
mér er sagt að þegja meðan fréttatíminn er.
Súrmjólk í hádeginu og Cheerios á kvöldin
og mamma er svo stressuð, en þó mest á sjálfri sér.Svo inn á dagskólann mér dröslað er í flýti
mig sárverkjar í handleggina eftir mömmu tog.
En þar drottnar dagmamman með ótal andlitslýti
það er eins og hún hafi fengið hátt í hundrað þúsund flog.Súrmjólk í hádeginu og Cheerios á kvöldin
mér er sagt að þegja meðan fréttatíminn er.
Súrmjólk í hádeginu og Cheerios á kvöldin
eitt er víst að pabbi minn hann ræður öllu hér.Bráðum verð ég sex ára en það er fyrsta maí
daginn allan þann ég arka aleinn niðrí bæ.
Enginn tekur eftir því þó ég hangi þarna einn
því gamli er með launakröfu en orðinn alltof seinn.Súrmjólk í hádeginu og Cheerios á kvöldin
mér er sagt að þegja meðan fréttatíminn er.
Súrmjólk í hádeginu og Cheerios á kvöldin
og mamma er svo stressuð, en þó mest á sjálfri sér.