Skólinn leggur mikinn metnað í hvern og einn nemanda og eru hópatímarnir byggðir upp á einstaklingskennslu.
Það er ekki ráðlagt að kenna söngtækni fyrr en börn eru orðin a.m.k 13 ára, en það er svo margt sem hægt er að leiðbeina með án þess að fara djúpt í tækni og höfum við ógrynni af ráðleggingum sem börnin skilja vel og geta farið eftir. Það er ótrúlegt að sjá hvernig sjálfstraustið eykst með hverri viku og að lokum að sjá þau standa á sviði bein í baki, full sjálfstrausts að syngja fyrir fjölskyldu og vini. Það er ótrúlega góð tilfinning, sem venst aldrei, að sjá börnin blómstra.

Þegar ég var barn átti ég rosalega erfitt með að tala fyrir framan hóp. Mér kveið fyrir því að fara í skólann því ég var hrædd um að þurfa að tala uppá töflu fyrir framan bekkinn. Þetta er vond tilfinning og er ástæða þess að ég stofnaði þennan skóla 1994. Námskeið í hvers konar framkomu, þar sem góðir leiðbeinendur eru til staðar, er eitthvað sem fylgir þér út lífið.