Ég á augu ég á eyru
ég á lítið skrítið nef
Ég á augnabrúnir, augnalok
sem lokast þegar ég sef.
Ég á kinnar og varir rauðar
og á höfði hef ég hár
Eina tungu og tvö lungu
og heila sem er klár.
Ég á tennur og blóð sem rennur
og hjarta sem að slær
Tvær hendur og tvo fætur
tíu fingur og tíu tær
Ég get gengið, ég get hlaupið
kann að tala mannamál.
Ég á bakhlið ég á framhlið
en iannst inni hef ég sál
Ég er furðuverk
algjört furðuverk
sem að guð bjó til
Ég er furðuverk
algjört furðuverk
lítið samt ég skil.
inn í heilanum spurningum
ég velti fyrir mér
Og stundum koma svörin
svona eins og af sjálfu sér
En samt er margt svo skrítið
sem ég ekki skil
En það gerir ósköp lítið
því mér finnst gaman að vera til
Ég er furðuverk
algjört furðuverk
sem að guð bjó til
Ég er furðuverk
algjört furðuverk
lítið samt ég skil.