Sönvaborg 2 - Ég er að baka

Prenta texta

Ég er að baka, bak’í form
í nokkrar beyglaðar dollur og hræri með dívangorm.
Hér ég baka mitt brauð og syng,
ég sæki degið mitt í dálítinn moldarbring.
Ég baka tertu með brúnan koll
og þess vegna sit ég við dálítinn drullupoll
í honum heilmikið drullumall
hræri ég fyrir minn kall.
Þú mátt sjá en farðu svo frá því ég er að bakaÉg er að elda, elda mat
og ég elda í pott sem er eldgamalt vaskafat.
Ég hræri með spítu minn spónarmat
en það er frat að það er á fatinu svolítið gat.
En ég elda fyrir því
ég set stöppu í pottinn og stein set ég gatið í.
Og seinna ef ég eignast mann,
þá elda ég svona fyrir hann.
Þú mátt sjá en farðu svo frá því ég er að elda.Ertu að baka? hahahaha
Þetta finnst mér nú alveg fáránlegt vitleysa
Er það nú kaka? ahahaha
og er það nú pottur og er það nú eldamaskína.En ég elda fyrir þig
eg set stöppu í pottinn og stein set ég gatið í.
Og seinna ef ég eignast mann
þá elda ég svona fyrir hann.Þú mátt sjá en farðu svo frá því ég er að elda.