Ég hef gaman af dótinu,
gleymi mér stundum í rótinu,
þér finnst ef til vill komið nóg,
á ég að gefa þér gamla skó?
Stundum fer allt hér út um allt
eins og að blandist við pipar salt!
En það er nú svolítið fútt í því!
Ekkert má stöðva mitt hopp og hí!
Kannski fer ég á bólakaf
því draslið minnir á úfið haf,
svo kannski verð ég að taka til,
flokka allt ruslið
og selj´allar dósirnar,
tími til kominn að bæta sig!
Hvað skal gera við gömul föt?
Alltaf má laga og stopp´í göt.
Svo finn ég smotterí handa mér,
bæti í hrúguna þessa hér!
Kannski fer ég á bólakaf
því draslið minnir á úfið haf,
svo kannski verð ég að taka til,
flokka allt ruslið
og selj´allar dósirnar,
tími til kominn að ger´öllu skraninu skil!