Veröldin
er vinur minn
Verndar mig hvar sem er
Hún skrifar hátt
Þá sem hlusta vel
Svo opnaðu fyrir gátt
Eilífðin
er
endanleg
Enginn veit hvar hún er
Hún færir mér
Allt sem fýsir mig
Að vita um þetta líf
Ef við lygnum aftur augunum
Er það sem blasir við
Betra en allt, sem þú áður hefur séð
Ef við hverfum inn í hugarheim
Þar sem loftið leikur við
Þá finn ég trú
Tilveran
Er hrein og tær
Truflar þig ekki neitt
Að vera til?
Það gerir mig
Og ég lokast inní skel
Þar sem að enginn er
Fegurðin
Er Freyjan sem
Flýtur um inn í þér
Hún segir allt
Án þess að segja neitt.
Líttu í kringum þig