Síðan ég sá þig fyrst
Allar götur síðan
Eyði ég deginum með þig á heilanum
Síðan ég sá þig fyrst
Finnst mér ekkert annað mikilvægt
Merkilegt,magnað hvað ástin getur gert
Öll tengsl við sjálfan mig rofin
Af ást til þín er ég dofinn
Hvort sem ég vaki eða sofi
Ég set engin mörk
Allt mitt er orðið að þínu
Þú heldur á hjarta mínu
Og nærir kvöl mína og pínu.
Er þetta ást?
Að kveljast og þjást?
Einskonar ást?
Er það ást? Er það ást?
Þú ert það sem ég vil
Eitthvað meirirháttar þarf að ske
Til að ég hætti að elska þig
Alveg viss er um það
Þú varst sendur mér til björgunar
Þú þarna, áttunda undur veraldar
Öll tengsl við sjálfan mig rofin………………
Síðan ég sá þig fyrst
Allar götur síðan
Eyði ég deginum með þig á heilanum
Ég er fastur í vef
Svona líður dagurinn
Líkaminn, fókusinn er alltaf á þér.
Öll tengsl…..
Er þetta ást?