Ný dönsk - Flugvélar

Prenta texta

FLUGVéLAR

þegar ég horfi á þig mér finnst ég vera til

allt verður auðvelt allt verður einfalt

getur verið að samanlagðar sálir geti einhverju breytt

þegar ég horfi á þig lifna dauðir hlutir við

steinarnir ilma gráta og hlægja

getur verið að samanlagðar sálir geti einhverju breytt

allt verði yfirstigið öll náttúrunnar lögmál

og við svífum um loftið tvær ástfangnar flugvélar

yfir úthafinu ég elska þig það sér okkur enginn þar

í fimm þúsund fetum ég kyssi þig og býst svo til lendingar

En þegar ég horfi á þig er veröldin svo smá

í faðmlagi okkar jörðin og sólin

getur verið að samanlagðir sálir geti einhverju breytt

að allt verði yfirstigið öll náttúrunnar lögmál