Jabadabadú-Disney - Við höldum vörð

Prenta texta

Þett’er ótrúleg för.
Jörðin breytist í myndir.
Þú ert ást mín og yndi.
Þú ert afskaplega sæt.

Sætust blómin þú færð
og mér finnst að mig dreymi
en nú vöktum við heiminn.
Þessi veröld er ágæt.

Já, höldum vörð.
Og nú fer töfrateppið hátt.
Nú förum við á sveim um nýjan heim
og fiðring fæ ég í mig.

Já, höldum vörð.
Svö dásamleg er þessi jörð
og er ég ferðast hér
ég alsæl er
og ávalt vil ég halda vörð með þér.
Ég vil líka halda vörð með þér.

Fiðring í mig ég fæ.
Yndælt er hvað við svífum
er við háloftin klífum
upp í stjörnubjartan geim.
Við höldum vörð.
Meir’að skoða þú færð.

En ekkert jafnast á við þig.
Þá sjálfan mig þér gef ég.

Við fljúgum út um allt.
Mér finnst það snjallt.
Ef þú ferð frá mér
verður út’um mig.

Já, höldum vörð.
Þett’er ótrúlegt allt.
Við fljúgum yfir himna sjö.
Enga óvini hef ég.
Þett’er hreint ævintýr’
og heimur nýr.
Um hann skulum halda
vörð við tvö.

Við höldum vörð.
Já höldum vörð.
Ég treyst’ á þig.
Ég treyst’ á þig.
Hratt hjartað slær.
Þú ert frábær.
Og þú átt mig.

Við höldum vörð.
Við höldum vörð.
Og þú átt mig.