Ég get sigrað heiminn nú
gengið undir regnbogann,
yfir himins hæstu brú.
Saman ég og þú
við hræðumst ekki sannleikann,
og draumarnir þeir rætast nú… úh-úh-úh…
Ég vil vinna afrek, trúðu mér
sá sem aldrei prófar, hvergi fer.
Lengra, hærra hraðar, hvert sem er,
tækifærin bíða trúðu mér.
Ah-ah-ah-ah…
ég á draum sem rætist nú…
Stundum lífið er
grámygla og glórulaust
en þá er gott að gleyma sér.
Liggja þér við hlið,
og tala um góðu draumana
sem fylgja okkur alla leið… úh-úh-úh…
Ég vil vinna afrek, trúðu mér
sá sem aldrei prófar, hvergi fer.
Lengra, hærra hraðar, hvert sem er,
tækifærin bíða, trúðu mér.
Rólegt viðlag:
Til að sigra heiminn, vinna dáð
látum koma tíma, koma ráð.
Hafðu trú og taktu bara á
tækifærin birtast þá…
La la la la la la…
la la la la la la…
Lengra, hærra hraðar, hvert sem er,
tækifærin birtast mér.
Ah-ah-ah-ah…
ég á draum sem rætist nú..