Ingó og Veðurguðirnir - Argentína

Prenta texta

Ég hitti hana í argentínu

hún sagði mér sögur af landinu sínu

hún sagðimér allt sem mig langaði að heyra

og ef að ég spurði þá sagði hún mér meira

Brú:

Ég skildi samt ekki mikið

svo við töluðum fyrir vikið

miklu minna og gerðum annað

og aðallega það sem er bannað

ég lofaði að vera í bandi

ef ég yrði í þessu landi

aftur á næstu árum

og svo kvaddi ég hana með tárum

Chorus

Adios amiga

adios senjorita

adios amiga

adios senjorita

y gracias

Ég hitti hana í argentínu

hún sagði mér sögur af landinu sínu

Um Diego armando kóng maradona

og lífið sem var ekki alltaf svona

Brú

chorus

Hún kenndi mér að elska

hún kenndi mer að lifa

hún kenndi mér svo orðin sem ég skrifaði á miða

mig langaði að vita

mig langaði að finna

hið venjulega líf en nú langar mig það minna

hingað er ég kominn og fastur í hlekki

ég veit að ég sé hana ekki

sama hvað mig langar

sama hvað ég reyni

ég vonað eg sé enn sá eini

eini sem hún elskar eini sem saknar

eini sem hún hugsar um þegar hún vaknar en núna sé ég hana aldrei meir

Viðlag x2