Í svörtum fötum - Engin orð

Prenta texta

Sakleysi sakna

og sólardaga útivið,

ég geymi æskumynd.

Í veruleik vakna,

en vilji getur ákveðið

hvað geymir lífsins lind.

Ég hélt það yrði annað

sem eignuðu mér örlögin,

sem barn, ég grunlaus var.

Seinna er fátt eitt sannað.

Í sandinum á ég ennþá vin,

en tekst að týnast þar.

Í myrkri þú ert ljós

sem að lýsir mér, eins og rós

sem mér gefin er, eða hrós,

efst í huga mér,

hvert sem liggur leið,

Tækifærin tel ég,

og tilveran er ótrúleg,

því komin er ég hér.

Að vera með þér nú vel ég,

ég veit það fer á besta veg,

það engin spurning er.

Í myrkri þú ert ljós….

Ég hélt það yrði annað

sem eignuðu mér örlögin

Að vera með þér nú vel ég,

ég veit það fer á besta veg,

það engin spurning er.