Heitar Lummur - Gaggó Vest

Prenta texta

Bjallan glymur gróft er hennar mál.
Gaggó-Vest hefur enga tildursál.
Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.

Kennarahræin eru kuldaleg í framan
kannski þykir þeim hreint ekki gaman
að vakna í bítið í vetrarhríð
til að vitka draugfúlan æskulíð.

Bekkjastofur fyllast af bleikum fésum
Finnum og Jónum og Siggum og Drésum
handalögmál og hefðbundin læti
hundskisti til að fá ykkur sæti.

Segðu mér hvaða ár hengdu þeir Krist?
Í hvaða bandi spilar Frans þessi Liszt?
Einn týndi bókinni annar gleymdi að lesa.
Af hverju kallar hann okkur lúsablesa?

Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó- , Gaggó gaf mér allt sem reyndist svo best

Nú er kennarafundur um komandi fár
þeir kalla faraldurinn bítla-hár.
Frá Lifrapolli ljót berast org
lýðurinn dansar um stræti og torg.

Var ekki nóg að fá tjútt og tvist?
Tæpast flokkast þessi öskur sem List?
Drottinn minn það er dansæfing í kvöld.
Djöfullinn sjálfur mun taka hér völd.

Allt í einu er Andrés littli orðinn stór
það gera hinri alræmdu bítla-skór.
Hér verður rokkað og rólað um allt
það rennur vatn undir hörund vort kalt.

Eins og sést, eins og sést, eins og sést
þá er ég alinn upp í Gaggó-Vest.
Gaggó-Vest, Gaggó-Vest, Gaggó-Vest
gaf mér allt sem reyndist svo best

Kennari:
Kond uppað töflunni hvað sem þú heitir
þú minnir á púk’a- og öfgasveitir.
Af hverju er haus á herðum þínum?
Taktu nú vel eftir orðum mínum:
Þú verður aldrei annað en rukkari, róni
eða þaðan af verra,

rugguhestur og uxakerra.

Ó kennari minn þá kveð ég þig nú
með kurt og pi og segi I love you.
Ich Liebe dich, Jet aime, ég elska þig.
Er nokkur von til þess að þú elskir mig?