Á morgun er kominn nýr dagur
og sporin sem ég steig í nótt.
Fyrnast fljótt á þessum stað
gleymir þú mér eða hvað.
Skipið skríður frá landi
með skellum við skundum á braut.
Augun skær um höfin breið
mér fylgja alla leið.
Ég er á leiðinni, alltaf á leiðinni
til þess að segja þér hve heitt ég elska þig.
En orðin koma seint og þó ég hafi reynt
mér gengur nógu illa að skilja sjálfan mig.
Á sjónum enn ég lafi
oft ég heilann brýt um það.
Að örlögin mér hafi
ætlað einmitt þennan stað.
Þú veist að ég uni ekki í landi
en verklaginn er ég á sjó.
Svo þú sérð að ég verð
að fara þessa ferð
Ég er á leiðinni……….