Bugsy Malone - Yfirgefin og án þín

Prenta texta

Rétt eins og flón, reikul í spori,
ráfa ég um alla tíð.
Rétt eins og flón, sem fugl að vori
flýg ég á rúðu og líð.
Ó ég vildi vita eitt
hví ég vitkast aldrei neitt.
Yfirgefin og án þín
eins og skýjaglópur græt ég
því skýjaborgin var tálsýn.Aftur á ný, eirðalaus kjáni
uggði ei að mér, söng og hló.
Aftur á ný, auðtrúa kjáni
eignaðist von sem að dó.
Ég hef farið þessa ferð
og mér fannst hún ei þess verð.
Yfirgefin og án þín.
Eins og skýjaglópur græt ég
því skýjaborgin var tálsýn.