Bugsy Malone - Langar þig að læra að boxa?

Prenta texta

Langar þig að læra að boxa?
Langar þig í slag?
Láta heljarhöggin dynja?
Hefuru á því lag?
Kanntu að berja og slá, kanntu að bíða þér frá?
Kanntu að berjast?
Kanntu að villa örðum sýn? Veistu að varúð er brýn?
Kanntu að verjast?
Hafirðu ei það sem þarf
þú skallt finna annað starf.Langar þig að læra að boxa?
Lemja aðra í spað?
Ég sé vel hvort er varið í þig
veit allt um það.
Þó að allt virðist fært áttu enn margt ólært
elsku vinur.
Þó að vel virðist gert getur verið að þú sért
voða linur.
hafirðu ei það sem þarf
þú skalt finna annað starf.Settu hann í hringinn
horfum drenginn á.
Hvar er einbeitingin?
Kann hann ekki að slá?
Þann saklausa dreng
við kýlum í keng.
Líttu á þennan staula
langar hann í sjens?
Kremjum þennan aula
kennum honum dans.
Já ofureflið
snýr hann úr hálslið.
Hættu við!Langar þig að líf þitt vinur
lýsi frægðarsól?
Kannski berstu bærilega
blundi í þér fól.
Haltu áfram að slást þú skalt þjarka og þjást
þú skalt þræla.
Já, þú um það ei fæst því ef árangur næst
er það sæla.
En hafirðu ei það sem þarf
þú skalt finna annað starf.Hentu honum í hringinn
höggið vill hann fá.
Litla vesalinginn
lumbrum honum á.
Senn hann kremst á járbrautarlest
má ég nota hnefann?
Berja hann í mauk leifðu mér að setann
lemja hann í lauk.
Ég fæ brosið á ný
nú er sláturtíð.