Bugsy Malone - Ég heiti Tallulah

Prenta texta

Ég heiti Tallulah. Ég tala ekki um eitt:
Hvort það taki því að koma eða fara yfirleitt.
En stúlku eins og mér er enginn leikur að leyna
það leikur aldrei vafi á hvar má finna mig eina.Ég heiti Tallulah. Mín heimspeki er
að hika ekki við að þyggja það sem mér ber.
Í valdastöðum eru menn sem vel ég þekki
ég veit hvernig þeir líta út en nöfn man ég ekki.Dapur? Vinur vertu ekki dapur.
Vinur þinn Tallulah lagfærir það sem amar að.
Dapur? Vinur vertu ekki dapur.
Víst hefur Tallulah gull í hjartastað.
Hræsnararnir tala um hana tóma þvælu
Tallulah kann að veita þér unað og sælu.Ég heiti Tallulah. Ég held mína leið.
Ég hét því að staldra hvergi við nema um skeið.
Mér leiðist orðið bless því það er ljóta orðið
ég legg líka í upphafi öll spil á borðið.Dapur? Vinur vertu ekki dapur.
Vinur þinn Tallulah lagfærir það sem amar að.
Dapur? Vinur vertu ekki dapur
Víst hefur Tallulah gull í hjartastað.
Hræsnararnir tala um hana tóma þvælu
Tallulah kann að veita þér unað og sælu.