Á morgun. Þetta sama svar
það sama alls staðar, bæð’í dag og gær.
Á morgun. Það verður varla senn
veit ég ekki enn hvað klukkan slær.Ég læt ekki deigan síga
ég er fæddur til að stíga dans.Á morgun. Á morgun er mér sagt.
Margt er á mig lagt fyrir drauminn minn.
Á morgun. Á morgun uns ég dey
meira get ég ei, ég er uppgefinn.Ég læt ekki deigan síga
ég er fæddur til að stíga dans.Tónlistin mig fyllir, fegurðin mig tryllir
fætur mína gyllir
heimur allur fer að hljóma.
Sorgir þínar deyfðu, hristu þig og hreyfðu
hrópaðu og leyfðu
angistinn’í gleð’að óma.Á morgun. Ó morgundagur kær,
þú mjakast ekkert nær mér til háðungar.
Á morgun. Og mér sem liggur á
mun ég ávallt fá þetta sama svar?Ég læt deigan síga
ég er fæddur til að stíga dans.