(Stress, stress)
Þetta óþarfa stress
(Stress, stress)
Verður bara til þess
(Stress, stress)
Enginn getur verið hress
(Stress, stress, stress)Aumingja mamma,
alltaf svo hnuggin,
alveg á taugum,
gráleit og guggin
alltaf á hlaupum,
alltaf að vinna,
allaf að lifa
minna og minna.æ, já
æ, já
æ, jáReikningastaflinn
hækkar og hækkar,
frístundum hennar
fækkar og fækkar,
hún þarf að mæt’ í
hárgreiðsl’ og litun,
hún þarf að sinna
megrun og fitun.Vertu nú hress
ég vil þér svo vel,
vertu nú hress
mér er ekk’ um sel,
vertu nú hress
því afleitt ég tel
allt þetta fjárans leiðinda stress.Aumingja mamma,
ekur á hundrað,
tímahrak hefur
taugunum splundrað.
Alltaf of sein og
alltaf í hasti,
alltaf í stóru
leiðindakasti.Æ, já
æ, já
æ, jáHún þarf að versla,
þrífa og bóna,
hún þarf að elda,
hekla og prjóna,
horfa á fréttir,
fylgjast með spánni,
fjarlægja gamalt
líkþorn af tánni.Vertu nú hress
ég vil þér svo vel,
vertu nú hress
mér er ekk’ um sel,
vertu nú hress
því afleitt ég tel
allt þetta fjárans leiðinda stress.(Stress, stress)
Þetta óþarfa stress
(Stress, stress)
Verður bara til þess
(Stress, stress)
Enginn getur verið hress
(Stress, stress, stress)