Ávaxtakarfan - Vaxtalagið

Prenta texta

Ég vil geta vaxið eins og tré
í allar áttir alveg langt uppfyrir hné
og hækkað og stækkað og teygst og tognað
og látið síðan eins og ekkert sé

Mig langar til að verða voða stór
stærri ‘en hundraðþúsund manna karlakór
verða stærri og lengri og mjórri og meiri
og láta síðan eins og ekkert sé

Og ég vil vaxa og vaxa og vaxa
vaxa upp í loftið
Vaxa miklu meira en áður hefur sést
Og ég vil vaxa og vaxa og vaxa
vaxa í allar áttir
Og verða svo stór

Ég vil gnæfa yfir allan heim
og ná með hausinn alveg langt, langt uppí geim
vera stærstur og hæstur og lang , lang lengstur
og látið síðan eins og ekkert sé

Og ég vil vaxa og vaxa og vaxa
vaxa upp í loftið
Vaxa miklu meira en áður hefur sést
Og ég vil vaxa og vaxa og vaxa
vaxa í allar áttir
Og verða svo stór

já, ég vil vaxa í allar áttir og verða svona stór