Ávaxtakarfan - Rétt og rangt

Prenta texta

Hvað er rétt og hvað er rangt
Hvað er gott og hvað er vont
hvað er ást og hvað er hatur
þig ég spyr en áttu svar

Hver er ég og hver ert þú
Hvað er hvítt ef ekki er svart
hvað er bros ef ekki er gleði
þig ég spyr en áttu svar

Ég er ein af þeim sem villtist hingað óviljug
og enginn virðir mig viðlits
Allir virðast snúast mér í mót
En ef þú veist það ekki vinur
vil ég segja þér
að ég býð lífinu byrginn
Allir hafa rétt á að vera til
og þar með ég

Hver er ég og hver ert þú
Hvað er hvítt ef ekki er svart
hvað er bros ef ekki er gleði
þig ég spyr en áttu svar

Ég er ein af þeim sem villtist hingað óviljug
og enginn virðir mig viðlits
Allir virðast snúast mér í mót
Allir virðast snúast mér í mót
En ef þú veist það ekki vinur
vil ég segja þér
að ég býð lífinu byrginn
Allir hafa rétt á að vera til
og þar með ég