Á móti sól - Rangur maður

Prenta texta

Af hverju get ég ekki – lifað eðlilegu lífi

Af hverju get ég ekki – lifað bisness lífi

Keypt mér hús, bíl og íbúð

Af hverju get ég ekki gengið menntaveginn

þangað til að ég æli

Af hverju get ég ekki gert neitt af viti

Af hverju fæddist ég lúser?

Ég er rangur maður

Á röngum tíma

Í vitlausu húsi

Ég er rangur maður

Á röngum tíma

Í vitlausu húsi , jejeje

Af hverju er lífið svona ömurlegt

Ætli það sé skárra í Zimbabwe

Af hverju var ég fullur á virkum degi

Af hverju mætti ég ekki í tíma

Af hverju get ég ekki byrjað í íþróttum

og hlaupið um eins og asni

Af hverju get ég ekki verið jafn hamingjusamur

og Sigga og Grétar í Stjórninni , jeje

Ég er rangur maður…….