Á móti sól - Fiskisaga

Prenta texta

Hér kemur
saga af sjóurum fimm
Þeir silgd´útá haf meðan nótt var enn dimm
Nú átti að reyna í síðasta sinn
Að sarga upp einasta golþorskinn
Að veiðann í línu – að veiðann í net
Handfæri, vörpu – það væri nú met
Sem seint yrði slegið- það væri nú bið
Það væri enginn eftir að reyna sig við

Einn í djúpi – fimm á
sjó
Þorskar á landi – af þeim er jú nóg
Sem allt vilja gleypa og allt vilja fá
Bara að einhver vildi veiða þá

Svo var
það þessa sömu nótt
Að sjóurum tókst að fanga hann skjótt
Því freysting í landi er græðgi í sjó
Sá guli er þorskur hann gleypa vill nóg
Hann dreginn var upp – og dempt niðrá dekk
Og dauðvona þorskur settí aflaskrekk
Þeir hrukku við – þeim heyrðist þorskurinn
Ropa ég er síðasti golþorskurinn

Einn í djúpi – fimm á
sjó
Þorskar á landi – af þeim er jú nóg
Sem allt vilja gleypa og allt vilja fá
Bara að einhver vildi veiða þá

En við
þetta vaknaði skipstjórinn
Skaust fram úr koju og rauk í radarinn
Öskraði upp strikið og stefndi í höfn
Silgdi ekki framar um sæfexta dröfn
Nú skildi róið á þverhausamið
Þurralandsþorskar fengju ei framar grið
Í draumunum var hann varaður við
Volgdugan hroll fann hann fara um sig

Einn í djúpi – fimm á
sjó
Þorskar á landi – af þeim er jú nóg
Sem allt vilja gleypa og allt vilja fá
Bara að einhver vildi veiða þá