Þú sem ekkert veist, ekkert getur breyst
ekki halda mér á þessum stað.
En hver er frjáls, í hugarheimi má
ég ferðast þangað óbeislað.
En það er von mín að við förum brátt á annan stað,
á annan stað.
Og hver sem ástæðan sem mér er gefin
þá fölna ég sem slör mitt sítt.
Og sláttur hjartans hverfur allra fyrstur
og svo fylgir með allt hitt.
Því það er von um að ég fari brátt á annan stað,
á annan stað
á annan stað.
En hvað sem gerist næst þá er hliðið sem var læst
að baki framtíðin óskrifað blað.
Og frelsið sem ég þrái, veit ég finn það hjá þér
við dönsum inní nóttina.
Já því með þér ég kemst, með þér ég kemst á þennan stað,
á þennan stað,
ohh, á annan stað.