Heit þín ást…minn huga laust
Hjartans mál….úr viðjum braust
Heitur hver
Eldur,vatn…..vor og haust
Í höndum þínum er ég….hljóðfæri
Hörpu sálar minnar þekkir þú
Og leikur á….
Mitt hjartans lag
Og er þú létt um strengi mína leikur
lagið eina…hreina….sanna
og hjartað þitt
Það slær í takt við mitt
Við eigum saman
já, við eigum saman
eitt hjartans lag
Heit þín ást…minn huga laust……..
Og er þú létt um strengi mína leikur…..
Við eigum saman…….
Svo eru tilbrigði við stefin leikin
Skrefin aðeins lengra gengin
Inn í nótt…sem engan endi sér
Í höndum þér…sem eldur dags
Úr hafi rís…
Ég heyri hljóma….Hjartans lag
Já sem elding hugans laust
Mín sál úr viðjum braust
Er heyrði ég
Hin eina sanna tón
Við eigum saman…….