Páll Óskar - Betra líf

Prenta texta

Svo lít ég bara í kringum mig og sé

Alla þessa fegurð nærri mér

Ég tók því sem gefnu

En staldra aðeins við

Ég er á réttum tíma á réttum stað

Hverjum get ég þakka fyrir það?

Ég opnaði augun

Og hjartað

Fann á ný, betra líf

Af því ég fór loks að trúa því

Að það væri eitthvað annað

Eitthvað meir og miklu stærra

Oh, Fann á ný, betra líf

Af því ég fór loks að trúa því

Að það væri eitthvað annað

Eitthvað meir og miklu stærra

En allt sem er

Hvort sem það er stórt eða agnarsmátt

Ég skynja einhvern meiriháttar mátt

Ég þarf enga sönnun

Ég finn og veit og sé

Með allri sinni þekkingu og fé

Aldrei gæti maður skapað tré

Ég opnaði augun

Og hjartað

Fann á ný, betra líf

Af því ég fór loks að trúa því

Að það væri eitthvað annað

Eitthvað meir og miklu stærra

Oh, Fann á ný, betra líf

Af því ég fór loks að trúa því

Að það væri eitthvað annað

Eitthvað meir og miklu stærra

En allt sem er

Andinn í efninu

Efnið í andanum