Umvefur mig svarta þoka
Sofna um sinn, hugarheimar lokast
Skýjaborgir og hlátrasköll
Leiða mig áfram inn í draumahöll
Ég fer upp, ég fer upp, ég fer upp, ég fer upp
Stjörnuhiminn, stjörnuhiminn þar ljósið skín
Stjörnuhiminn, stjörnuhiminn viltu gæta mín
Og ég lofa að vera þín
Vektu mig blítt svo ég finni slóðann
Hjarta mitt hlýtt slær á drumbur stórar
Við enda hafsins hvílir sólarlag
Sem heilsar mér og kveður þennan dag