Ég veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær
ég trúi ekki á orðin þín
ef annað segja stjörnur tværOg þá mun allt verða eins og var
sko áður en þú veist, þú veist
og þetta eina sem út af bar
okkar á milli í friði leystOg seinna þegar tunglið
hefur tölt um langan veg
þá tölum við um drauminn
sem við elskum þú og égÉg veit þú kemur í kvöld til mín
þó kveðjan væri stutt í gær
og trúi ekki á orðin þín
ef annað segja stjörnur tvær