Heiða - Dimmar rósir

Prenta texta

Dimmar rósir eru minning þín,
heitar nætur eru þú og ég.
Bjartir dagar eru brosið þitt,
örfá tár, ég græt þig ástin mín.

Ef ég fæ að sjá þig aftur
lífið breytir lit.
Ef þú kemur til mín aftur
ég mun tigna þig.

Minning þín þá mun bera fögur blóm,
brosið þitt þá táknar bjartan dag.
Þú og ég þá eigum heitar nætur,
gleðibros, ég fæ þig ástin mín.

Ó, mig langar til lifa,
langar til að finna þig.
Ó, mitt líf mun ætíð verða einlæg bið.
Ég veit svo vel þú kemur ei,
veit svo vel þú horfin ert,veit svo vel að líf mitt er einskis vert.

Dimmar rósir…

Ó, mig langar til að lifa…