Traustur vinur
Enginn veit fyrr en reynir á
Hvort vini áttu þá.
Fyrirheit gleymast þá furðu fljótt
þegar fellur á niðdimm nótt
Já sagt er að, þegar af könnunni ölið er
Fljótt þá vinurinn fer
Því segi ég það, ef þú átt vin í raun
Fyrir þína hönd – Guði sé laun.
Því stundum verður mönnum á
Styrka hönd þeir þurfa þá
þegar lífið, allt í einu – sýnist einskisvert
Gott er að geta talað við – einhvern sem að skilur þig
Traustur vinur – getur gert – kraftaverk
Mér varð á, og þungan dóm ég hlaut
Ég villtist af réttri braut
Því segi ég það, ef þú átt vin í raun.
Fyrir þína hönd – Guði sé laun
Því stundum verður mönnum á
Styrka hönd þeir þurfa þá
Þegar lífið, allt í einu – sýnist einskisvert
Gott er að geta talað við – einhvern sem að skilur þig
Traustur vinur – getur gert – kraftaverk
Sóló