Hér er ljóð um ljóð
ljóð sem ekki er til.
Það vantar vit og hljóð
það vantar orð og bil.Hérna eru orð
sem eiga að fara í það:
Úr því á annað borð
það álpaðist af stað.Þetta ljóð er leitt
og líka nokkuð glatt
um allt og ekki neitt
algjört skrök og satt.Ef þið eruð góð
ég ekki meira þyl…
Þetta er ljóð um ljóð
ljóð sem nú er til.