Uppáhalds ljóðin okkar - Grannmeti og átvextir

Prenta texta

Í ávaxtadeildinni er úvalið mest
af öllu því gómsæti er mér þykir best.
Þar finn ég sviðaldin, sæfíkjur, nöldrur
sigurber, fríðaldin, lítrónur, skvöldrur.
Síaldin, flatber og ofurepli,
umsínur grænar með bleikum depli.
Goðdalíettur og grammófínur,
groddur og snjóþrúgur, andrésínur.
Brimsætar hnuðlur og beiska tota,
biðlistasúrur og útúrsprota.
Gammsínur mjúkar og meðalónur,
menningarfíkjur og aðaltrónur. (bara bara)
Úlfaldinkjarna, ráðber og reskjur,
ritepli, myndber og granatsveskjur.
Veimiltítur og vitsmuníerur,
viðloður, æsiber, sýndarperur.Dísúrar, snoðloðnar hentihnetur,
holdafíkjur og gettubetur.
Argentínur og tildurfrævur
tökusúrur og ofurnæfur.barabarabaÍ grænmetisdeildinni er dásamlegt,
deildin er orðin mjög vel þekkt.
Þar fæ ég sauðlauka, samkál, iðkur,
svepperur ferskar og nýjar kviðkur.
Átómata, lufsur, læpur,
loðbaunir og erkinæpur.
Angantýrur og æskirætur,
ofvirkjur gular og salatfætur.
Bleikrætur, kvartöflur, kálnjólaþistla,
kórblöðkur svartar og ætipistla.
Sandölur, geðrót og göngurenglur,
gildistökur og púrruhenglur.
Beinhreðkur svalar og baunagúrkur,
brauðrætur og erkiskúrkur.
Ofanígjafir og grísablöðkur
geigunarkál og sundurmöðkur.Yndisgeirur og ofurþorskur,
undirlægjur og rataoskur.
Grannmeti og átvexti er gott að fá,
geðið batnar í öllum þá.
Meltingin verður meira en góð
maginn kveður gleðihjlóð.