Uppáhalds ljóðin okkar - Fjölleikafúsi

Prenta texta

Hann Fjölleikafúsi
í fjölleikahúsi
lifir og leikur sér,
sá taumlausi trúður
með tennur og lúður
þjóna vill þér og mér.Hann syngur með grettum og glettum
og gengur með fettum og brettum
og djöflast með dettum og skvettum
og dinglar í tágafléttum
og hoppar á hnjám
og hangir á tám
í reipum, á rám og slám.
Hann er alveg ær
æpir og hlær.Öll hans leikrænu læti
líkjast ekta kæti.Heim um kvöldið hann kemur
krakkana sína lemur
og sorglega vísu semur.