Söngvaborg 1 - Tumi fer á fætur

Prenta texta

Hann Tumi fer á fætur
við fyrsta hanagal
að sitja yfir ánum
lengst inni í fjalladal.

Hann lætur hugann líða
svo langt um dal og fjöll,
því kóngur vill hann verða
í voða stórri höll.

Og Snati hans er hirðfífl
og hrútur ráðgjafinn.
Og smalahóll er höllin.
– En hver er drottningin?