Íslensk ástarlög - Ólýsanleg

Prenta texta

Ólýsanleg

Höf: Magnús Þór Sigmundsson

Ein sól á himninum skín
aldrei skugga minn sér
Hún bjó hann samt til
Hann fylgir mér

Já, eins er ástin sem ég til þín ber
ólýsanleg
Kyssast skuggar um kvöld
renna saman í eitt
leysast svo upp í nær ekki neitt
Já, eins er ástin sem ég til þín ber
ólýsanleg

Leika sér skuggi og ljós
jörð tungl og sól
Leika sér himninum á
og eiga þar skjól
Svo er stjarna á himni
sem lýsir upp eilífa nótt

jörðina himnan’a og mig
í sandinum spor
Sólina hafið og þig
tvo skugga um vor
Eins er ástin sem ég til þín ber
óendanleg

Ég veit að til er svo margt
sem í fjarlægð er smátt
milljónir stjarna
sem aldrei sjást
Já, eins er ástin sem ég til þín ber
ólýsanleg

Leika sér skuggi og ljós
jörð tungl og sól
Leika sér himnunum á
og eiga þar skjól