Íslensk ástarlög - Með þér

Prenta texta

Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við
hlið
og halda út á veginn saman og líta aldrei við.
Með þér vil ég verða gömul og ganga lífsins veg
með þér er líf mitt ríkara – með þér er ég bara ég.

Menn segja ég sé breytt og syngi um börnin og þig
ég syng um það sem skiptir máli aðeins fyrir mig.
Eitt mátt þú vita – ég elska þig meira en lífið sjálft
ég trúi án þín mitt líf væri hvorki heilt né hálft

Með þér er vorið yndislegt
og sumarið dýrðin ein.
Með þér er haustið göngutúr
og ævintýri undir stein.
Með þér er veturinn kertaljós
koss og stök rós

Sóló

Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við hlið
og halda út á veginn saman og líta aldrei við.
Með þér vil ég verða gömul og ganga lífsins veg
með þér er líf mitt ríkara – með þér er ég bara ég.

Með þér er vorið yndislegt
og sumarið dýrðin ein.
Með þér er haustið göngutúr
og ævintýri undir stein.
: Með þér er veturinn kertaljós
koss og stök rós :