Birgitta Haukdal - Segðu mér allt

Prenta texta

Í hugann komu spurningar
Já, þær sem aðeins tíminn fær svarað
Við kljúfa verðum öldurnar
Og hreinsa út hvað okkur fær nagað

Hlustaðu á mig,Því ég á mér bjartan draum

Ég vil sjá þig,Eins og þú ert,Hver ert þú í raun

Segðu mér allt
Sýndu mér heim
Allt lífið er framundan
Augnablik eitt
Öllu fær breytt
Ef aðeins þú opnar fyrir mér

Mitt hjarta ég vil gefa þér
Við hlið þér ég vil ganga lífsins veg
Í mínum draumum er ég sef
Finn ilm af þér á sólbjörtum degi

Segðu mér allt
Sýndu mér heim
Allt lífið er framundan
Augnablik eitt
Öllu fær breytt
Ef aðeins þú treystir mér

Það er, svo furðulegt hér
Tilfinningarnar að tjá
Það er, svo yndislegt,Að sjá…..

Segðu mér allt
Sýndu mér heim
Allt lífið er framundan
Augnablik eitt
Öllu fær breytt
Ef aðeins þú treystir mér

Segðu mér allt
Sýndu mér heim
Allt lífið er framundan
Augnablik eitt
Öllu fær breytt
Ef aðeins þú opnar fyrir mér
Ef aðeins þú opnar fyrir mér