Birgitta Haukdal - Meðal andanna

Prenta texta

Einmana.
Mig rekur.
Myrkrið svart.
Hin kalda nótt.
Frostið hefur myndað rós á gluggann.
Ótal augu fylgja mér, er ei rótt.

Meðal andanna.
Sál á röngum stað.
Myrkrið hefur tekið öll mín völd.
Meðal andanna.
Fangi hugsana.
Eigin vanmáttur stendur vörð.

Hjartað berst.
Mér stjórnað.
Hringiða slæmra hugsana.
Þungur andardrátturinn
mér heldur.
Innst ég vona að brátt það kvikni ljós.
Meðal andanna.
Sál á röngum stað.
Myrkrið hefur tekið öll mín völd.
Meðal andanna.
Fangi hugsana.
Eigin vanmáttur stendur vörð.

Þótt stjórni mér hugsanir ég vil berjast.
Hlekkina losa og reyni að verjast
hugsunum mínum og snúa aftur heim.

Meðal stjarnanna
finn ég leiðina.
Eru þetta sporin mín heim?
Meðal stjarnanna
fann ég leiðina.
Út úr þokunni fer eigin leið.
Meðal stjarnanna
fann ég leiðina.
Þetta er leiðin mín heim.

Ég er komin heim.